Nær 30 milljónir króna í styrki til skóla- og frístundastarfs

Skóli og frístund Fjármál

Skóla- og frístundaráð afgreiddi á fundi sínum í dag almenna styrki og þróunarstyrki til skóla- og frístundastarfs. Yfir sjötíu umsóknir bárust og fengu fjörutíu verkefni styrki fyrir alls um 30 milljónir króna.

Við afgreiðslu þróunarstyrkja var haft að leiðarljósi að styrkja verkefni sem leggja áherslu á læsi, lýðræði, mannréttindi og upplýsinga- og tæknimennt í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.

Hæsti þróunarstyrkurinn, 2,5 milljón króna, fór til verkefnisins Okkar mál sem miðar að auknu samstarfi um menningu, málþroska og læsi í Fellahverfi. Þetta er samstarfsverkefni leikskóla, grunnskóla og frístundar í Fellahverfi, auk Háskóla Íslands og þjónustumiðstöðvar Breiðholts.

Hólabrekkuskóli fékk 1,2 milljónir króna til að búa til gagnvirk málfræðiverkefni fyrir unglinga í dönsku og íslensku og Laugarlækjarskóli fékk 1,3 milljónir króna til skapandi starfs í upplýsingaveri skólans. Þá kom 1.5 milljón króna í hlut leikskólans Suðurborgar til að efla sérhæfingu skólans í atferlisþjálfun fyrir börn á einhverfurófi og frístundamiðstöðin Frostaskjól fékk 1 milljón króna til verkefnisins Lýðræði og mannréttindi í leik og starfi.

Sjá yfirlit yfir þróunarstyrki skóla- og frístundaráðs.

Hæstu almennu styrkirnir runnu til verkefna sem miða að því að efla upplýsinga- og tæknimennt í reykvískum skólum og stuðla að auknum lestri. Þetta voru verkefni Rithöfundasambands Íslands Skáld í skólum og verkefnið Moodle - Vísir að verkefnabanka sem miðar að því vinna verkefni í íslensku, samfélagsfræði og upplýsingamennt fyrir 8. - 10.bekk í Moodle-námsumsjónarkerfinu. Þá var m.a. veittur styrkur til að halda myndlistarnámskeið fyrir börn í Breiðholti, halda námskeið fyrir unglinga í útvarpsþáttagerð og gera umferðarleikrit til forvarna fyrir yngstu bekki grunnskóla í borginni.

Sjá yfirlit yfir almenna styrki skóla- og frístundaráðs.