Tendrun jólatrésins fór fram á Austurvelli í dag. Fjöldi fólks mætti á Austurvöll til að fylgjast með og var boðið upp á glæsilega dagskrá þar sem sungin voru jólalög og jólasveinar litu við. Tendrun jólatrésins á sér sérstakan stað í hugum borgarbúa, því þegar búið er að kveikja á jólaljósunum á trénu hefst jólahátíðin.
Jólatréð er gjöf til Reykjavíkurborgar frá Óslóarborg og var fjölmenni mætt á Austurvöll til að fylgjast með dagskránni sem í boði var. Söngkonurnar Ragga Gísla og Sigríður Thorlacius ásamt hljómsveit sungu nokkur jólalög. Að því búnu veitti Jón Gnarr borgarstjóri grenitrénu viðtöku úr hendi Dag Wernø Holter sendiherra Noregs og Rinu Marin Hansen, borgarfulltrúa Verkamannaflokksins í Ósló. Að loknu þakkarávarpi tendraði hinn sjö ára gamli norsk-íslenski Ólafur Gunnar Steen Bjarnason ljósin á trénu.
Viðburðurinn hefur um 62 ára skeið markað upphaf jólahalds í borginni og á sér fastan sess í hjörtum borgarbúa sem fjölmenna á viðburðinn hvert ár.
Giljagaur, Gluggagægir og Stúfur litu við, börnunum til mikillar gleði, en þeir laumuðu sér í bæinn til að segja börnunum sögur og syngja jólalög ásamt hljómsveitinni. Stefanía Ragnarsdóttir nemandi í Langholtsskóla og sigurvegari í stóru upplestrarkeppni grunnskóla Reykjavíkur í Laugardal, Háaleiti og Bústaðarhverfi frumflutti kvæði um Gluggagægi.
Gluggagægir er áttundi óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og rennur allur ágóði af sölu hans til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Í óróanum fer saman íslenskur menningararfur, ritsnilld og hönnun - ásamt mikilsverðu málefni. Vilborg Dagbjartsdóttir og Siggi Eggerts leggja félaginu lið með túlkun sinni á Gluggagægi –Vilborgi yrkir málið og Siggi í stálið. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt verkefnið en óróar Styrktarfélagsins hafa prýtt Óslóartréð, jólatré Reykvíkinga og verið eina skrautið á trénu auk jólaljósanna.
Eimskip hefur frá upphafi flutt Óslóartréð til Reykjavíkur, borgarbúum að kostnaðarlausu. Borgarstjóri, Jón Gnarr tók þátt í að fella 12 metra hátt grenitréð í skóglendi utan við Óslóborg. Tréð er 42. ára gamalt og var valið fyrir 10 árum síðan sem framtíðar vinagjöf til Reykjavíkurbúa.