Börn í leik- og grunnskólum í Vesturbæ hafa verið í ljóðaham undanfarnar vikur og farið með ljóðaorma á milli skóla. Þetta er þeirra framlag til Ljóðs í leiðinni á Lestrarháhátíð í Reykjavík.
Ljóðaormurinn verður þannig til að börn í einum skóla semja nokkrar ljóðlínur og láta þær svo ganga til næsta skóla sem bætir sínum ljóðlínum við og sendir í þriðja skólann. Svona gengur þetta koll af kolli þar til allir skólar í Vesturbænum eru komnir með í orminn.
Ormurinn byrjaði að liðast um Vesturbæinn í byrjun október þegar hann skreið af stað frá leikskólanum Gullborg með eftirfarandi ljóðlínur í farteskinu:
Hús, hundar, götur ,kettlingar,
og fíflar í grasinu,
hænur í húsdýragarðinum.
ljósaperur í myrkrinu
og hestar.
1. bekkingar í Melaskóla tóku við ljóðaorminum eftir haustfríið og ortu svo áður en þeir fóru með orminn yfir í Vesturbæjarskóla:
Melaskóli kæri í Reykjavík er
þar er gott að búa og vinir allir eru hér.
Í Selinu er gaman þar leika allir saman.
Og skólinn minn er bestur og hér er alltaf lestur.
Í Seli alltaf leikum saman
Í öðru vali allir vilja vera saman
Við eigum öll að leika saman
Því vinir öllum við erum.
Við tínum fífla og förum í sólbað í Nauthólsvík.
Laufin detta af trjánum,
það snjóar úti og við verðum að fara í kuldagalla.
Stelpur og strákar í fótbolta
Og hitta þriggja stiga í körfubolta
Krakkar tína blóm
Eins og ljón.
Sjá meira um ljóðaorminn í Melaskóla.