Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur að skýringin á mengun í settjörn í Mjódd og Kópavogslæk sé fundin og sé afleiðing af viðhaldsframkæmdum á þaki bílageymslu í Seljahverfi.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur að skýringin á mengun í settjörn í Mjódd og Kópavogslæk sé fundin og sé afleiðing af viðhaldsframkæmdum á þaki bílageymslu í Seljahverfi.
Heilbrigðiseftirlitið telur að líklegasta skýringin sé að mengunin hafi borist í umhverfið þegar verið var að að gera við um 1000m2 plan, sem einnig er þak á bílageymslu í Seljahverfi. Planið var háþrýstiþvegið og má sjá ummerki um að töluvert af óhreinindum hafi farið í regnvatnskerfið við þá aðgerð. Blanda af viðgerðarefni, fíngerðu dufti og vatni, var borin á flötinn.
Heilbrigðiseftirlitið fékk ábendingu frá borgarbúa um að þegar það rigndi föstudaginn 10. maí hafi vatn sem skolaðist af planinu í ofanvatnsniðurföll verið mjólkurlitað. Vatnið hefur síðan skilað sér í settjörn sem tekur við ofanvatni en vegna þess hve auðleyst duftið er í vatni barst mengunin áfram í Kópavogslæk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill vegna þessa atviks vekja athygli á því að óheimilt er að valda mengun í ofanvatni. Því þurfa verktakar og aðrir sem standa í framkvæmdum utandyra að gæta varúðar og gera það sem í þeirra valdi stendur til að valda ekki mengun í regnvatnslögnum.
Til útskýringar er bent á að á þessu svæði er tvöföld fráveita sem þýðir að skólpi og ofanvatni er veitt í tveimur aðskildum fráveitulögnum. Þá er mengað fráveituvatn, s.s. húsaskólp og iðnaðarskólp flutt eftir einni lögn en annað fráveituvatn s.s. ofanvatn eftir regnvatnslögn.