Kynningarfundur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins

Haldinn verður opinn kynningarfundur* um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024, kl 16.30,  þann 18. apríl í Salnum Kópavogi.  Kynntar verða tillögur að breytingum sem tilkomnar eru vegna yfirstandandi endurskoðunar aðildarsveitarfélaga á aðalskipulagi.

Kynning þessi fer fram áður en breytingartillögur eru teknar til afgreiðslu hjá svæðisskipulagsnefnd og sveitarstjórnum.

Nánari kynningargögn er að finna á vef samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins

*Lögboðin kynning sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.