Kynningarfundur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins
Haldinn verður opinn kynningarfundur* um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024, kl 16.30, þann 18. apríl í Salnum Kópavogi. Kynntar verða tillögur að breytingum sem tilkomnar eru vegna yfirstandandi endurskoðunar aðildarsveitarfélaga á aðalskipulagi.
Kynning þessi fer fram áður en breytingartillögur eru teknar til afgreiðslu hjá svæðisskipulagsnefnd og sveitarstjórnum.
Nánari kynningargögn er að finna á vef samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins
*Lögboðin kynning sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.