Kynning á deiliskipulagi Landsímareits

Skipulagsmál

""

Kynning á breytingu deiliskipulags Landsímareits og Kvosar verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur, miðvikudaginn 20. febrúar nk.  Kynningin verður haldin í Tjarnarsal Ráðhússins og stendur yfir frá kl. 17 - 18.30.

Kynnt verður tillaga að breytingu deiliskipulags fyrir Landsímareit í Kvosinni. Skipulagssvæðið afmarkast af Aðalstræti, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti.

Í framhaldi af kynningarfundinum hefst hagsmunaaðilakynning sem stendur frá og með 20. febrúar til  6. mars 2013. Athugasemdum eða ábendingum er veitt móttaka á kynningartímanum. Þeim verður ekki svarað skriflega heldur verða þær innlegg í áframhaldandi vinnu. Þær skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is.

Tillaga að breyttu deiliskipulagi mun verða til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur og í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni  12 - 14, auk þess sem hún verður aðgengileg á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Kynningin er opin öllum.