Kynning á breytingu deiliskipulags Landsímareits og Kvosar verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur, miðvikudaginn 20. febrúar nk. Kynningin verður haldin í Tjarnarsal Ráðhússins og stendur yfir frá kl. 17 - 18.30.
Kynnt verður tillaga að breytingu deiliskipulags fyrir Landsímareit í Kvosinni. Skipulagssvæðið afmarkast af Aðalstræti, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti.
Í framhaldi af kynningarfundinum hefst hagsmunaaðilakynning sem stendur frá og með 20. febrúar til 6. mars 2013. Athugasemdum eða ábendingum er veitt móttaka á kynningartímanum. Þeim verður ekki svarað skriflega heldur verða þær innlegg í áframhaldandi vinnu. Þær skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi mun verða til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur og í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14, auk þess sem hún verður aðgengileg á heimasíðu Reykjavíkurborgar.
Kynningin er opin öllum.