Á aðventunni verður róleg og ljúf stemning í Grasagarðinum. Alla virka daga er leikskólabörnum boðið í aðventustundir í Grasagarðinum og njóta börn og kennarar þess að eiga saman notalegar stundir í ljósum prýddum garðskálanum við jólasöng, lestur og leik á þessum annasama árstíma.
Café Flóra verður opin allar helgar fyrir jól, frá kl. 12-16.30, og þar verða seldar ljúffengar jólaveitingar, heitt kakó og jólaglögg að hætti Marentzu. Þar má líka búast má við skemmtilegum uppákomum allar aðventuhelgarnar. Einnig er Café Flóra með jólahlaðborð öll fimmtudag-, föstudags- og laugardagskvöld fram að jólum, sjá nánar á www.cafeflora.is
Aðventan í Laugardalnum býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Í fallegu umhverfi getur fjölskyldan átt saman skemmtilegan dag; kíkt á dýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, skautað í kringum jólatré í Skautahöllinni, heimsótt Ásmundarsafn, gengið um Grasagarðinn, fengið sér heitt kakó og ristaðar möndlur á Café Flóru og stungið sér í Laugardalslaugina. Sjálfur jólakötturinn hefur svo komið sér vel fyrir í Húsdýragarðinum þar sem hann býr yfir jólin. Óargadýrið bregður sér oft af bæ, fer í göngutúr um Laugardalinn og kemur þá víða við og veldur usla. Og ef vel er að gáð má sjá spor eftir jólaköttinn og kannski glittir í glyrnur í glugga.
Verið velkomin í Jóladalinn
www.facebook.com/joladalurinn