Jólamerki Thorvaldsensfélagsins í 100 ár - sýning í Ráðhúsinu

Velferð Mannlíf

""

Eitt hundraðasta jólamerki Thorvaldsensfélagsins verður gefið út fyrir næstu jól með mynd eftir Baltasar Samper myndlistarmann. Í tilefni tímamótanna var haldin sýningin Jólamerki í 100 ár í Ráðhúsi Reykjavíkur. Jón Gnarr borgarstjóri opnaði sýninguna í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag og sagði hann í ræðu sinni að verslunin Thorvaldsens basar hafi verið fastur liður í tilveru sinni á unglingsárunum.

Thorvaldsensfélagið sem stofnað var 19. nóvember 1875 er góðgerðarfélag sem um eitt hundrað konur standa að. Í nærri 138 ár hafa Thorvaldsenskonur staðið vörð um velferð þeirra sem minna mega sín og komið á fót og stutt við óteljandi verkefni í þágu barna, unglinga, ungra kvenna og pilta og eldri borgara. 

Félagið rekur myndarlega sjóði Barnauppeldissjóð og Kortasjóð og verslunina Thorvaldsensbazar að Austurstræti 4 þar sem félagskonur starfa í sjálfboðavinnu ásamt einu stöðugildi verslunarstjóra.

Ein helsta tekjulind Barnauppeldissjóðs hefur verið útgáfa og sala á jólamerkjum. Fyrsta jólamerkið var gefið út árið 1913 og allt frá fyrstu tíð var leitað til listamanna um myndir á jólamerkin. Þau gefa því mikilvæga innsýn í íslenska myndlist og eru merkilegt menningarfyrirbæri. Eitt hundraðasta jólamerkið verður gefið út fyrir næstu jól með mynd frá Baltasar Samper myndlistarmanni.  Að því tilefni verður félagið með sýninguna ,,Jólamerki í 100 ár“ í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Jón Gnarr borgarstjóri opnaði sýninguna í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag og sagði hann í ræðu sinni að verslunin Thorvaldsens basar hafi verið fastur liður í tilveru sinni á unglingsárunum. " Hjá Thorvaldsens-basar kom ég aldrei að lokuðum dyrum. Aldrei minnist ég þess að hafa verið óvelkominn þar eða tortryggður. Þvert á móti var tekið á móti mér með miklum elskulegheitum og mér var sinnt eins og ég væri í rauninni viðskiptavinur sem hugsanlega myndi kaupa eitthvað." Borgarstjóri kom á framfæri þökkum sínum til félagsmanna í Thorvaldsens félaginu fyrir góðar móttökur á þessum árum. 

Árum saman hefur félagið stutt við velferðarmál í Reykjavík. Barnauppeldissjóður gaf til að mynda Reykjavíkurborg Vöggustofu 1963 og dvalarheimili fyrir börn nokkru síðar. Jafnframt hefur sjóðurinn stutt við barna- og unglingastarf í skólum borgarinnar og verkefni í þágu barna á vegum heilsugæslunnar og spítalanna í Reykjavík. 

Á síðasta starfsári voru veittir styrkir fyrir rúmlega 9 milljónir. Stærstu styrkirnir fóru til meðferðar- og endurhæfingardeildar Landspítalans fyrir ungt fólk með byrjandi geðrofssjúkdóma, til Thorvaldsenssjóðsins sem sinnir málefnum barna og unglinga með sykursýki við Barnaspítala Hringsins og til Heilsuskólans sem er forvarnar- og meðferðarúrræði fyrir börn sem glíma við offituvanda.