English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Eitt hundraðasta jólamerki Thorvaldsensfélagsins verður gefið út fyrir næstu jól með mynd eftir Baltasar Samper myndlistarmann. Í tilefni tímamótanna var haldin sýningin Jólamerki í 100 ár í Ráðhúsi Reykjavíkur. Jón Gnarr borgarstjóri opnaði sýninguna í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag og sagði hann í ræðu sinni að verslunin Thorvaldsens basar hafi verið fastur liður í tilveru sinni á unglingsárunum.
Thorvaldsensfélagið sem stofnað var 19. nóvember 1875 er góðgerðarfélag sem um eitt hundrað konur standa að. Í nærri 138 ár hafa Thorvaldsenskonur staðið vörð um velferð þeirra sem minna mega sín og komið á fót og stutt við óteljandi verkefni í þágu barna, unglinga, ungra kvenna og pilta og eldri borgara.
Félagið rekur myndarlega sjóði Barnauppeldissjóð og Kortasjóð og verslunina Thorvaldsensbazar að Austurstræti 4 þar sem félagskonur starfa í sjálfboðavinnu ásamt einu stöðugildi verslunarstjóra.
Ein helsta tekjulind Barnauppeldissjóðs hefur verið útgáfa og sala á jólamerkjum. Fyrsta jólamerkið var gefið út árið 1913 og allt frá fyrstu tíð var leitað til listamanna um myndir á jólamerkin. Þau gefa því mikilvæga innsýn í íslenska myndlist og eru merkilegt menningarfyrirbæri. Eitt hundraðasta jólamerkið verður gefið út fyrir næstu jól með mynd frá Baltasar Samper myndlistarmanni. Að því tilefni verður félagið með sýninguna ,,Jólamerki í 100 ár“ í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Jón Gnarr borgarstjóri opnaði sýninguna í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag og sagði hann í ræðu sinni að verslunin Thorvaldsens basar hafi verið fastur liður í tilveru sinni á unglingsárunum. " Hjá Thorvaldsens-basar kom ég aldrei að lokuðum dyrum. Aldrei minnist ég þess að hafa verið óvelkominn þar eða tortryggður. Þvert á móti var tekið á móti mér með miklum elskulegheitum og mér var sinnt eins og ég væri í rauninni viðskiptavinur sem hugsanlega myndi kaupa eitthvað." Borgarstjóri kom á framfæri þökkum sínum til félagsmanna í Thorvaldsens félaginu fyrir góðar móttökur á þessum árum.
Árum saman hefur félagið stutt við velferðarmál í Reykjavík. Barnauppeldissjóður gaf til að mynda Reykjavíkurborg Vöggustofu 1963 og dvalarheimili fyrir börn nokkru síðar. Jafnframt hefur sjóðurinn stutt við barna- og unglingastarf í skólum borgarinnar og verkefni í þágu barna á vegum heilsugæslunnar og spítalanna í Reykjavík.
Á síðasta starfsári voru veittir styrkir fyrir rúmlega 9 milljónir. Stærstu styrkirnir fóru til meðferðar- og endurhæfingardeildar Landspítalans fyrir ungt fólk með byrjandi geðrofssjúkdóma, til Thorvaldsenssjóðsins sem sinnir málefnum barna og unglinga með sykursýki við Barnaspítala Hringsins og til Heilsuskólans sem er forvarnar- og meðferðarúrræði fyrir börn sem glíma við offituvanda.