Innköllun á Ülker Hero Baby þurrmjólk

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innköllun á Ülker Hero Baby þurrmjólk vegna vanmerkinga. 

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Innköllun á Ülker Hero Baby þurrmjólk vegna vanmerkinga. 

Sanitas heildverslun ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði þrjár gerðir af Ülker Hero Baby þurrmjólk vegna þess að vörurnar eru ekki merktar með ákveðnum upplýsingum á íslensku (s.s. notkunarleiðbeiningum).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Ülker Hero Baby.

Vöruheiti:  Bebek Sütü 1, Devam Sütü 2, Devam Sütü 3.

Strikanúmer:  8690504-550142, 8690504-550143, 8690504-550144.

Nettóþyngd:  500g.

Framleiðandi:  Hero.

Framleiðsluland:  Tyrkland.

Geymsluskilyrði:  Þurrvara.

Dreifing:  Verslun Iceland Engihjalla.

Þeir neytendur sem eiga umræddar vörur geta skilað þeim í verslun Iceland eða hjá Sanitas heildverslun ehf., Skútuvogi 3, 104 Reykjavík og fengið endurgreitt.