Innköllun á Ülker Hero Baby þurrmjólk vegna vanmerkinga.
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Innköllun á Ülker Hero Baby þurrmjólk vegna vanmerkinga.
Sanitas heildverslun ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði þrjár gerðir af Ülker Hero Baby þurrmjólk vegna þess að vörurnar eru ekki merktar með ákveðnum upplýsingum á íslensku (s.s. notkunarleiðbeiningum).
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Ülker Hero Baby.
Vöruheiti: Bebek Sütü 1, Devam Sütü 2, Devam Sütü 3.
Strikanúmer: 8690504-550142, 8690504-550143, 8690504-550144.
Nettóþyngd: 500g.
Framleiðandi: Hero.
Framleiðsluland: Tyrkland.
Geymsluskilyrði: Þurrvara.
Dreifing: Verslun Iceland Engihjalla.
Þeir neytendur sem eiga umræddar vörur geta skilað þeim í verslun Iceland eða hjá Sanitas heildverslun ehf., Skútuvogi 3, 104 Reykjavík og fengið endurgreitt.