Íbúasamtökin Betra Breiðholt boða til fundar

Íbúasamtökin Betra Breiðholt boða til fundar með fulltrúum þeirra framboða sem bjóða fram til alþingiskosninga. Fundurinn verður miðvikudaginn 3. apríl kl. 19.30 í sal Breiðholtsskóla Arnarbakka 1 - 3. Fundarstjóri verður Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts.

Vonast er til að íbúar nýti sér tækifærið sem gefst þarna til að hitta frambjóðendur.