Note: This news was published over two years ago.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt boða til fundar
Íbúasamtökin Betra Breiðholt boða til fundar með fulltrúum þeirra framboða sem bjóða fram til alþingiskosninga. Fundurinn verður miðvikudaginn 3. apríl kl. 19.30 í sal Breiðholtsskóla Arnarbakka 1 - 3. Fundarstjóri verður Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts.
Vonast er til að íbúar nýti sér tækifærið sem gefst þarna til að hitta frambjóðendur.