Íbúar í Hlíðunum völdu betri gönguleiðir
Betri gönguleiðir eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Hlíðunum völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Óskir íbúa í Hlíðunum beindust þannig einkum að bættu umhverfi en einnig var leiksvæði á óskalistanum.
1. Endurnýjuð var gangstétt við Rauðarárstíg meðfram Klambratúni.
2. Búið er að hanna leikskúlptúr til uppsetningar við Kjarvalsstaði. Verkið er í smíðum og verður sett upp þegar vorar.
3. Göngustígur á Klambratúni, frá Miklubraut að aðalstíg var malbikaður.
4. Gerð var gangstétt við norðanverða Drápuhlíð - vestan Lönguhlíðar.
5. Tré voru gróðursett á umferðareyjur við Lönguhlíð.
6. Gróður var aukinn á lóð leikskólans Klambra.
Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Hlíðunum var í fyrra um 26 milljónir króna og verður það óbreytt í ár. Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.
Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður á Kjarvalsstöðum mánudaginn 28. janúar kl. 17.