Íbúar í Hlíðunum völdu betri gönguleiðir

Betri gönguleiðir eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Hlíðunum völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra.  Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.



Óskir íbúa í Hlíðunum beindust þannig einkum að bættu umhverfi en einnig var leiksvæði á óskalistanum. 



1. Endurnýjuð var gangstétt við Rauðarárstíg meðfram Klambratúni.



2. Búið er að hanna leikskúlptúr til uppsetningar við Kjarvalsstaði. Verkið er í smíðum og verður sett upp þegar vorar.



3. Göngustígur á Klambratúni, frá Miklubraut að aðalstíg var malbikaður.



4. Gerð var gangstétt við norðanverða Drápuhlíð - vestan Lönguhlíðar.



5. Tré voru gróðursett á umferðareyjur við Lönguhlíð.



6. Gróður var aukinn á lóð leikskólans Klambra.



Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Hlíðunum var í fyrra um 26 milljónir króna og verður það óbreytt í ár.  Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.

Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður á Kjarvalsstöðum mánudaginn 28. janúar kl. 17.