Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal kusu betri útivistarsvæði

Áherslur íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal í vali verkefna í tengslum við „Betri hverfa“ í fyrra voru einkum uppsetning bekkja og fræðsla.  Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.



Óskir íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal beindust einkum að betri útivist:  

 

  1. Pantaðir voru bekkir úr náttúruefni sem settir verða við göngustíg umhverfis Reynisvatn.

     
  2. Settur upp nýr bekkur og ruslastampur við leikvöllinn milli Kirkjustéttar og Ólafsgeisla.

     
  3. Búið er að kaupa bekki og ruslafötur til að setja upp á fimm völdum stöðum í austurhluta Grafarholts.

     
  4. Búið er að tengja saman göngustíga við Gvendargeisla og Reynisvatn.

     
  5. Upplýsingaskilti um fuglalíf við Reynisvatn er komið upp.

     
  6. Gengið var frá umferðareyju við Urðarbrunn.

     
  7.  Uppsetning á bekk og frágangur umhverfis við göngustíg við Reynisvatnsás bíður til vors 2013 þar sem sáning er hluti af verkinu.

     
  8. Keyptar voru plöntur til að setja niður við enda Ólafsgeisla. Þær verða settar niður í vor.

 

Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Grafarholti og Úlfarsárdal var í fyrra um 18 milljónir króna og verður það óbreytt í ár. 



Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.



Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður í Dalskóla í dag, fimmtudaginn 24. janúar, kl. 17.