Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal kusu betri útivistarsvæði
Áherslur íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal í vali verkefna í tengslum við „Betri hverfa“ í fyrra voru einkum uppsetning bekkja og fræðsla. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Óskir íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal beindust einkum að betri útivist:
-
Pantaðir voru bekkir úr náttúruefni sem settir verða við göngustíg umhverfis Reynisvatn.
-
Settur upp nýr bekkur og ruslastampur við leikvöllinn milli Kirkjustéttar og Ólafsgeisla.
-
Búið er að kaupa bekki og ruslafötur til að setja upp á fimm völdum stöðum í austurhluta Grafarholts.
-
Búið er að tengja saman göngustíga við Gvendargeisla og Reynisvatn.
-
Upplýsingaskilti um fuglalíf við Reynisvatn er komið upp.
-
Gengið var frá umferðareyju við Urðarbrunn.
-
Uppsetning á bekk og frágangur umhverfis við göngustíg við Reynisvatnsás bíður til vors 2013 þar sem sáning er hluti af verkinu.
- Keyptar voru plöntur til að setja niður við enda Ólafsgeisla. Þær verða settar niður í vor.
Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Grafarholti og Úlfarsárdal var í fyrra um 18 milljónir króna og verður það óbreytt í ár.
Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.
Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður í Dalskóla í dag, fimmtudaginn 24. janúar, kl. 17.