Hverfisgatan breytir um ásýnd

Framkvæmdir

""

Í dag var lokið við að steinleggja gatnamót Hverfisgötu og Vitastígs eftir gagngera endurnýjun lagna og því hægt að hleypa bílaumferð um þau á nýjan leik. Gangstéttar verða lagðar næstu daga. Opið verður fyrir bílaumferð af Hverfisgötu á Vitastíg, sem fyrir neðan Hverfisgötu verður tvístefnuakstursgata.

Áfram er unnið að framkvæmdum á Hverfisgötunni frá Vitastíg niður að  Klapparstíg.  Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað ásamt þeim lögnum sem komnar eru á tíma. Malbikaðar hjólareinar verða  beggja vegna götunnar og gatnamót verða steinlögð og upphækkuð, eins og sjá má á gatnamótunum sem voru opnuð í dag. Undir hellulögn á gatnamótum er snjóbræðsla og er hún einnig sett í gönguleiðir og hjólareinar.
 
Í þessum mánuði mun Hverfisgatan taka sjáanlegum breytingum dag frá degi. Framkvæmdum er skipt í nokkra áfanga og í dag var staðan þessi: 
 
  • Hverfisgata milli Vitastígs og Frakkastígs.  Verið að leggja neðra malbikslag og í kjölfarið verður farið í að leggja grásteinskant og vinna við undirbúning gangstétta og hjólastígs.
  • Gatnamót Hverfisgötu og Frakkastígs.  Ákveðið var að hefja framkvæmdir síðar en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir til að draga úr truflun fyrir umferð, en nú er byrjað á lagnavinnu og í framhaldinu verða lagnir úr aðliggjandi götuköflum tengdar.
  • Hverfisgata frá Frakkastíg að Vatnsstíg.  Búið er að malbika neðra malbikslag og verið er að leggja grásteinskant.  Undirvinna fyrir hjólastíga og gangstéttar í gangi.
  • Gatnamót Hverfisgötu og Vatnsstígs.  Verið að leggja grásteinskant.  Fljótlega verður farið að undirbúa gatnamótin  fyrir lagningu snjóbræðslu og hellulögn.
  • Hverfisgata frá Vatnsstíg að Klapparstíg.  Búið að malbika neðra malbikslag götu.  Undirbúningur gangstétta og hjólastíga í gangi.
 
Á gatnamótun Hverfisgötu og Klapparstígs verður ekki farið í heildarendurnýjun að sinni en innan tíðar þarf að loka  gatnamótunum í nokkra daga vegna tengingar á bakrás hitaveitu og snjóbræðslustofnum.