Í dag var lokið við að steinleggja gatnamót Hverfisgötu og Vitastígs eftir gagngera endurnýjun lagna og því hægt að hleypa bílaumferð um þau á nýjan leik. Gangstéttar verða lagðar næstu daga. Opið verður fyrir bílaumferð af Hverfisgötu á Vitastíg, sem fyrir neðan Hverfisgötu verður tvístefnuakstursgata.
Áfram er unnið að framkvæmdum á Hverfisgötunni frá Vitastíg niður að Klapparstíg. Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað ásamt þeim lögnum sem komnar eru á tíma. Malbikaðar hjólareinar verða beggja vegna götunnar og gatnamót verða steinlögð og upphækkuð, eins og sjá má á gatnamótunum sem voru opnuð í dag. Undir hellulögn á gatnamótum er snjóbræðsla og er hún einnig sett í gönguleiðir og hjólareinar.
Í þessum mánuði mun Hverfisgatan taka sjáanlegum breytingum dag frá degi. Framkvæmdum er skipt í nokkra áfanga og í dag var staðan þessi:
- Hverfisgata milli Vitastígs og Frakkastígs. Verið að leggja neðra malbikslag og í kjölfarið verður farið í að leggja grásteinskant og vinna við undirbúning gangstétta og hjólastígs.
- Gatnamót Hverfisgötu og Frakkastígs. Ákveðið var að hefja framkvæmdir síðar en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir til að draga úr truflun fyrir umferð, en nú er byrjað á lagnavinnu og í framhaldinu verða lagnir úr aðliggjandi götuköflum tengdar.
- Hverfisgata frá Frakkastíg að Vatnsstíg. Búið er að malbika neðra malbikslag og verið er að leggja grásteinskant. Undirvinna fyrir hjólastíga og gangstéttar í gangi.
- Gatnamót Hverfisgötu og Vatnsstígs. Verið að leggja grásteinskant. Fljótlega verður farið að undirbúa gatnamótin fyrir lagningu snjóbræðslu og hellulögn.
- Hverfisgata frá Vatnsstíg að Klapparstíg. Búið að malbika neðra malbikslag götu. Undirbúningur gangstétta og hjólastíga í gangi.
Á gatnamótun Hverfisgötu og Klapparstígs verður ekki farið í heildarendurnýjun að sinni en innan tíðar þarf að loka gatnamótunum í nokkra daga vegna tengingar á bakrás hitaveitu og snjóbræðslustofnum.