Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur sett tvær tillögur að starfsleyfum í auglýsingu, starfsleyfi Matfugls ehf. og Höndlunar ehf.
Starfsleyfi Matfugls er fyrir alifuglabú að Melavöllum á Kjalarnesi þar sem leyfilegur fjöldi eldisstæða er 110.400. Starfsleyfi Höndlunar er fyrir svínabú í Brautarholti á Kjalarnesi þar sem leyfilegur hámarksfjöldi dýra í húsum hverju sinni er 4000 dýr.
Rétt til að gera athugasemdir við tillögur að starfsleyfum hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, umhverfis- og skipulagssviði, Borgartúni 12 - 14, 105 Reykjavík, í síðasta lagi 17. september 2013.