Hátíðafundur í Hörpu

Menning og listir

""

Höfuðborgarstofa efnir til hátíðafundar í Hörpu á morgun miðvikudaginn 14. ágúst kl. 14.00.

Markmið fundarins er að leiða saman skipuleggjendur hátíða á höfuðborgarsvæðinu, forsvarsmenn ferðaþjónustunnar og aðra þá sem standa að kynningu Íslands á erlendri grund. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðarskipuleggjendur og aðilar innan ferðaþjónustu koma saman og leita leiða til að koma á framfæri því fjölbreytta menningarlífi sem höfuðborgarsvæðið hefur upp á að bjóða allt árið um kring.



Á fundinum munu fulltrúar Reykjavíkurborgar fjalla um mikilvægi hátíða í menningarlífinu, kynna Borgarhátíðasjóð, markaðsverkefnið Reykjavík Festival City og frumsýna kynningarmyndbönd frá helstu hátíðum höfuðborgasvæðisins.



Þá verða pallborðsumræður um mikilvægi góðs samstarfs á milli hátíðaskipuleggjenda og ferðaþjónustuaðila þar sem fulltrúar frá Icelandair, Hönnunar Mars, Íslandsstofu, Ráðstefnuborginni Reykjavík og Iceland Naturally ræða mikilvægi góðs samstarfs aðila við kynningu á menningarlífi Íslands.



Sjá nánar dagskrá.