Handverkssýningar félagsmiðstöðva velferðarsviðs

Mannlíf Menning og listir

""

Það eru fleiri en íslenskir hönnuðir sem sýna handverk þessa dagana. Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs Reykjavíkur halda nú hver af annarri veglegar vorsýningar, sem allar eru opnar almenningi. Félagsmiðstöðvar Velferðarsvið eru alls 16 og í öllum hverfum borgarinnar.

Meðal þeirra er félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 sem heldur sína árlegu handverkssýningu fimmtudaginn 23. maí kl. 13:00 - 17:00 og föstudaginn 24. maí kl. 13:30 - 16:00.

Það verður margt fallegt að sjá úr vinnusmiðjum vetrarins m.a.  í Hekli, prjónaflíkum, bútasaum og útsaum. Starfsfólk stöðvarinnar tekur vel á móti gestum og mun svara öllum spurningum um starf félagsmiðstöðvarinnar. Kaffiveitingarnar geta vart verið þjóðlegri eða kaffi og pönnukökur.

Og félagsmiðstöðvarnar Lindargötu 59 og Vesturgötu 7, halda sýningu á handverki auk þess að kynna starfsemi sína dagana 24. 26. og 27.  maí frá kl. 13-16:30 í félagsmiðstöðinni Vesturgötu 7.  

Fjölbreytt starf félagsmiðstöðvanna verður kynnt og sýndir munir sem gestir félagsstarfsins haf unnið t.d. tréútskurður, glerbræðsla og glerskurður, bókband,  bútasaumur, postulín, myndlist, leirmunir, prjón, hekl, útsaumur, skartgripir o.fl.  Sýning félagsmiðstöðvanna er öllum opin. Veislukaffi verður frá kl. 14:30-16:00 nema sunnudag frá kl.13:30-16:00 auk þess sem þarna verður handverksala frá 13.00-16.00. 

 

Nánar um dagskrá á Vestugötu 7:

Föstudaginn 24 maí

kl. 13:30-14:30: sungið við flygilinn

við undirleik Gróu Hreinsdóttir.

Kl. 14:30-16:00 dansað undir stjórn Sigvalda Þorgeirssonar 

Sunnudaginn 26 maí

kl.15:00 nemendur frá Dansskóla Jóns Péturs og Klöru sýna samkvæmisdansa.

Mánudaginn 27 maí

kl.14:00  syngur kór Félagsstarfs aldraðra í Reykjavík (Söngfuglarnir) undir stjórn Gróu Hreinsdóttur.

Kl.15:00 leikur Vitatorgsbandið fyrir dansi.