Hagsmunaaðilakynning vegna tillögu að nýju deiliskipulagi Vesturbugtar við Gömlu höfnina, breyttu deiliskipulagi Nýlendureits ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Mýrargötu.
Fimmtudaginn 16. maí - kl. 17:00 – 18:30. Kynningin verður haldin í Víkinni, sjóminjasafninu við Grandagarð 8. Veittur verður frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum til 30. maí 2013.
Athugasemdir/ábendingar skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is og verður þeim ekki svarað skriflega heldur eru þær innlegg í áframhaldandi vinnu. Fundurinn er öllum opinn og er vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Lýsing vegna deiliskipulags Vesturbugtar. Skipulag Vesturbugtar afmarkast af Ánanaustum í vestri og að Slippnum í austri. Einnig eru kynnt drög að deiliskipulagi svæðisins samkvæmt upprætti ALARK arkitekta ehf. dags. 6. maí 2013. Hagsmunaaðilakynning stendur til og með 30. maí 2013. Hægt er að senda ábendingar og athugasemdir á skipulag@reykjavik.is og verður þeim ekki svarað skriflega heldur eru þær innlegg í áframhaldandi vinnu.
Kynningargögn - deiliskipulagstillaga (PDF)
PPT kynning frá fundinum (PPT) ath. 19 MB