Reykjavík – iðandi af lífi, fræðsluátak Reykjavíkur um lífríki borgarinnar, heldur áfram með fræðsluviðburðinn, Hádegisfuglinn, sem verður á dagskrá mánaðarlega í hádeginu fram að jólum. Um er að ræða fuglaskoðun á léttu nótunum í Miðborg Reykjavíkur.
Næsti Hádegisfugl mun fara fram núna á fimmtudaginn, 14. nóvember, kl 12:00 á hádegi, að þessu sinni vestan megin við Reykjavíkurtjörn, við Tjarnargötu nálægt Ráðhúsinu. Nú fer að kólna í lofti við Tjörnina og daginn tekið að stytta mikið. Sá hópur fugla sem nú dvelur við Tjörnina er líklegur til að vera þar áfram í allan vetur. Álftir, grágæsir, stokkendur, skúfendur og hettumáfar eru þar mest áberandi en enn má sjá ýmsar aðrar fuglategundir. Þá gefur falleg haustbirtan lífríkinu töfrafenginn blæ og aðstæður fyrir ljósmyndun eru einstakar.
Snorri Sigurðsson fuglafræðingur stillir upp sjónauka og verður með létta fræðslu fyrir áhugasama. Gestir eru hvattir til að taka með sér kíkinn og umfram allt njóta þess að vera úti í birtunni innan um fuglalífið.
Sjá nánar á Facebook síðu Reykjavík – iðandi af lífi www.facebook.com/reykjavikidandi. Hádegisfuglinn mun einnig verða á dagskrá 12. desember á sama tíma en mögulega verður staðsetningin önnur, sjá nánar síðar.