TAKA 2013 - kvikmyndahátíð grunnskólanna í Reykjavík - verður haldin í Bíó Paradís miðvikudaginn 8. maí kl. 15.00. Þetta er elsta kvikmyndahátíð hér á landi og er hún nú haldin í 32. sinn. Hátt í fjögur hundruð grunnskólanemar hafa unnið að þeim áttatíu myndum sem keppa til verðlauna á hátíðinni og er það metþátttaka.
Athygli vekur hversu margar leiknar stuttmyndir keppa í flokki unglinga og eins hve margar myndir eru vel gerðar tæknilega. Það sem þær allar eiga sameiginlegt er að þær endurspegla mikinn áhuga barna og unglinga á kvikmyndamiðlinum, hugmyndaauðgi og svellandi sköpunargleði
Bestu myndir í hverjum flokki verða sýndar á hátíðinni en keppt er í flokkum stuttmynda, heimildamynda, hreyfimynda og tónlistarmynda. Keppnin er tvískipt eftir aldri, annars vegar myndir nemenda í 1. – 7. bekk og hins vegar nemenda í 8.-10. bekk.
Þrjár bestu myndirnar í hverjum flokki fá viðurkenningu, hið eftirsótta Klapptré.
Öllum er heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir.