Grafarvogsbúar völdu göngustíga og trjágróður

Aukin trjárækt og betri göngustígar eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Grafarvogi völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.

Óskir íbúa í Grafarvogi beindust einkum að betri gönguleiðum og umhverfi, en einnig var leiksvæði fyrir börn og fullorðna á óskalistanum.

  1. Gróðursett voru tré til skjóls á nokkrum stöðum í hverfinu m.a. við Borgaveg og Víkurveg.
  2. Trjágróður var settur niður við Langarima.
  3. Sett var ræsi í göngustíg neðan Staðahverfis til að losna við klakamyndun þegar vatn rennur yfir hann.
  4. Opið svæði norðan við Rimaskóla var hreinsað.
  5. Svæði austan hafnarsvæðis í Gufunesi var hreinsað.
  6. Gróðursett voru tré við Gullinbrú hjá Bryggjuhverfi.
  7. Settir voru upp nýir ruslastampar á nokkrum stöðum í hverfinu.
  8. Á göngustíg bak við Korpuskóla voru settir upp ljósastaurar á 140 metra kafla.
  9. Lýsing á gangstíg norðan við Rimaskóla var bætt. Settir voru upp ljósastaurar á um 300 metra kafla við stíg sem liggur norðan við skólann, innan skólalóðarinnar.
  10. Unnið var að gerð leiksvæðis fyrir börn og fullorðna við Gufunesbæ.
  11. Aðstaða og aðgengi á útivistarsvæði við Gufunesbæ var bætt m.a. með aukinni lýsingu.
  12. Göngustígur frá Fossaleyni yfir á Korputorg var malbikaður. Eftir er að byggja brú yfir Korpu en það verður gert fljótlega.
  13. Gróðurbeð á leiksvæðum í Staðahverfi voru hreinsuð og gróður yfirfarinn.

Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Grafarvogi var í fyrra um 40 milljónir króna og verður það óbreytt í ár. Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.