Grafarvogsbúar völdu göngustíga og trjágróður
Aukin trjárækt og betri göngustígar eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Grafarvogi völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Óskir íbúa í Grafarvogi beindust einkum að betri gönguleiðum og umhverfi, en einnig var leiksvæði fyrir börn og fullorðna á óskalistanum.
- Gróðursett voru tré til skjóls á nokkrum stöðum í hverfinu m.a. við Borgaveg og Víkurveg.
- Trjágróður var settur niður við Langarima.
- Sett var ræsi í göngustíg neðan Staðahverfis til að losna við klakamyndun þegar vatn rennur yfir hann.
- Opið svæði norðan við Rimaskóla var hreinsað.
- Svæði austan hafnarsvæðis í Gufunesi var hreinsað.
- Gróðursett voru tré við Gullinbrú hjá Bryggjuhverfi.
- Settir voru upp nýir ruslastampar á nokkrum stöðum í hverfinu.
- Á göngustíg bak við Korpuskóla voru settir upp ljósastaurar á 140 metra kafla.
- Lýsing á gangstíg norðan við Rimaskóla var bætt. Settir voru upp ljósastaurar á um 300 metra kafla við stíg sem liggur norðan við skólann, innan skólalóðarinnar.
- Unnið var að gerð leiksvæðis fyrir börn og fullorðna við Gufunesbæ.
- Aðstaða og aðgengi á útivistarsvæði við Gufunesbæ var bætt m.a. með aukinni lýsingu.
- Göngustígur frá Fossaleyni yfir á Korputorg var malbikaður. Eftir er að byggja brú yfir Korpu en það verður gert fljótlega.
- Gróðurbeð á leiksvæðum í Staðahverfi voru hreinsuð og gróður yfirfarinn.
Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Grafarvogi var í fyrra um 40 milljónir króna og verður það óbreytt í ár. Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.