Gangandi vegfarendur fá að njóta sín í miðborginni á Þorláksmessu því margar götur verða göngugötur tímabundið frá kl. 17:30 til miðnættis.
Göngugöturnar um kvöld á Þorláksmessu eru Laugavegur fyrir neðan Barónsstíg, Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis, Bankastræti, Austurstræti, Pósthússtræti og Aðalstræti. Heimilt er að aka þvert yfir Laugaveg af hliðargötum.