Göngugleði í miðborginni á Þorláksmessu

Umhverfi Framkvæmdir

""

Gangandi vegfarendur fá að njóta sín í miðborginni á Þorláksmessu því margar götur verða göngugötur tímabundið frá kl. 17:30 til miðnættis.

Göngugöturnar um kvöld á Þorláksmessu eru Laugavegur fyrir neðan Barónsstíg, Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis, Bankastræti, Austurstræti, Pósthússtræti og Aðalstræti.  Heimilt er að aka þvert yfir Laugaveg af hliðargötum.