Mikið var um litadýrð og gleði í göngunni sem haldin var í þrettánda sinn. Borgarbúar og gestir fjölmenntu í miðborgina til þess að fylgjast með og taka þátt í hátíðahöldunum og lýsa þar með yfir stuðningi sínum við mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Gleðigangan er hápunktur Hinsegindaga þar sem hinsegin fólk staðfestir tilveru sína, sýnileika og gleði.
Jón Gnarr, borgarstjóri tók þátt í gleðigöngunni í fjórða sinn og að þessu sinni klæddist borgarstjóri upphlut og möttli. Borgarstjóri var svo aðalræðumaður þegar skemmtidagskráin hófst á Arnarhóli. Í ræðu sinni sagði hann meðal annars: „Takk fyrir að hafa hjálpað okkur við að skilja hvað það er sem gerir okkur að manneskjum. Takk fyrir að hafa gert samfélagið okkar fjölbreyttara, sanngjarnara, betra og þúsund sinnum skemmtilegra. Takk fyrir að þora að vera öðruvísi.“
Á Arnarhóli tók svo við fjölbreytt skemmtidagskrá þar sem íslenskir skemmtikraftar, nokkrar íslenskar hljómsveitir sem slegið hafa í gegn á liðnum misserum, ýmsir vinsælir söngvarar stigu á stokk. Þá var boðið upp á barnadagskrá fyrir yngstu kynslóðina. Talið er að allt að 60 þúsund gestir hafi tekið þátt í hátíðahöldum Hinsegin daga í miðborginni.