Gleðiganga - götulokanir

Mannlíf Menning og listir

""

Gleðiganga Hinsegin daga og hátíðahöld henni tengd fara fram laugardaginn 10. ágúst nk. Í tengslum við hátíðina er búist við miklum fólksfjölda í miðborginni og óhjákvæmilega verða þar truflanir á bílaumferð um tíma.

Götur verða lokaðar í kringum gönguleiðina og hátíðasvæðið á meðan göngu og hátíðardagskrá stendur en gangan leggur af stað frá BSÍ kl. 14 og hátíðardagskrá við Arnarhól hefst að henni lokinni og stendur til kl. 17.30. Hinsegin dagar biðja hagsmunaaðila í miðborginni velvirðingar á þeim truflunum sem hátíðin kann að valda.

Gleðilega gleðihátíð!

Kort yfir lokun gatna laugardaginn 10. ágúst.

Nánari upplýsingar um dagskrá Hinsegin daga í Reykjavík má nálgast á www.reykjavikpride.com.