Fyrstu Ungklassík tónleikar ársins í Ráðhúsinu

Þriðjudaginn 29. janúar mun Reykjavíkurborg halda fyrstu Ungklassík tónleika ársins í Ráðhúsinu. Ungklassík er tónleikaröð sem er haldin í samstarfi við tónlistarskóla Reykjavíkur.



Markmið Ungklassíkur er að gefa ungu og hæfileikaríku tónlistarfólki tækifæri til að koma fram og kynna sína túlkun á verkum gömlu meistaranna. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 17.30 og eru allir velkomnir.