Note: This news was published over two years ago.
Fyrstu Ungklassík tónleikar ársins í Ráðhúsinu
Þriðjudaginn 29. janúar mun Reykjavíkurborg halda fyrstu Ungklassík tónleika ársins í Ráðhúsinu. Ungklassík er tónleikaröð sem er haldin í samstarfi við tónlistarskóla Reykjavíkur.
Markmið Ungklassíkur er að gefa ungu og hæfileikaríku tónlistarfólki tækifæri til að koma fram og kynna sína túlkun á verkum gömlu meistaranna. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 17.30 og eru allir velkomnir.