Fuglaganga verður farin um fjöruna við Ylströndina í samstarfi við Fuglavernd. Gangan verður farin á morgun þriðjudaginn 13. ágúst klukkan 17. Þáttakendur hittast á þaki Ylstrandarhússins og gengið verður í um eina klukkustund um fjöruna og fuglalífið skoðað. Edward Barry Rickson, mun leiða gönguna og fræða þátttakendur um þá fugla sem á vegi þeirra verða.
Alveg tilvalið að fara í skemmtilega fræðsluferð og kynna sér fuglalífið sem er fjölbreytt á þessu svæði. Munið eftir sjónaukanum og einnig getur verið gaman að hafa fuglabók með – og svo er bara að klæða sig eftir veðri
Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.