Frostaskjól stofnun ársins

Skóli og frístund

""

Starfsmannafélag Reykjavíkur valdi  „Stofnun ársins – Borg og Bær“ í annað sinn  þann 24.maí. Frístundamiðstöðin Frostaskjól bar sigur úr býtum í flokki  stærri stofnana,  með fleiri en 50 starfsmenn.  Frostaskjól fékk einkunnina 4.128 og er hæst allra stofnana í Reykjavík, hvort sem um litla eða stóra stofnun er að ræða.

Kannað er hjá félagsmönnun hvernig þeim líður í vinnunni, hvernig andinn á vinnustaðnum er,  traust á yfirmenn, ánægju og stolt, trúverðugleika stjórnenda, ímynd, sjálfstæði í starfi og fleira.

Könnunin er stærsta vinnustaðakönnun sem framkvæmd er hér á landi og gefur hún mikilvægar upplýsingar um stöðu starfmanna á vinnumarkaði. Samstarf er við stéttarfélögin VR og SFR um framkvæmdina.

Í Frostaskjóli starfa 109 starfsmenn á 8 starfseiningum og rík áhersla er lögð á að starfsmenn geti haft áhrif á vinnuumhverfi sitt og að skapa traust. Vellíðan starfsmanna skilar sér í betri þjónustu til borgarbúa og því til mikils að vinna að öllum líði vel.

Við óskum starfsmönnum Frostaskjóls hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur.