Starfsmannafélag Reykjavíkur valdi „Stofnun ársins – Borg og Bær“ í annað sinn þann 24.maí. Frístundamiðstöðin Frostaskjól bar sigur úr býtum í flokki stærri stofnana, með fleiri en 50 starfsmenn. Frostaskjól fékk einkunnina 4.128 og er hæst allra stofnana í Reykjavík, hvort sem um litla eða stóra stofnun er að ræða.
Kannað er hjá félagsmönnun hvernig þeim líður í vinnunni, hvernig andinn á vinnustaðnum er, traust á yfirmenn, ánægju og stolt, trúverðugleika stjórnenda, ímynd, sjálfstæði í starfi og fleira.
Könnunin er stærsta vinnustaðakönnun sem framkvæmd er hér á landi og gefur hún mikilvægar upplýsingar um stöðu starfmanna á vinnumarkaði. Samstarf er við stéttarfélögin VR og SFR um framkvæmdina.
Í Frostaskjóli starfa 109 starfsmenn á 8 starfseiningum og rík áhersla er lögð á að starfsmenn geti haft áhrif á vinnuumhverfi sitt og að skapa traust. Vellíðan starfsmanna skilar sér í betri þjónustu til borgarbúa og því til mikils að vinna að öllum líði vel.
Við óskum starfsmönnum Frostaskjóls hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur.