Framsagnahópur úr félagsmiðstöðinni Hæðargarði, svokallaður Soffíuhópur, hefur vakið mikla athygli undanfarna daga fyrir vasklega framgöngu við lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar á RÚV.
Hópurinn úr Hæðargarði er kenndur við leikarann Soffíu Jakobsdóttur, þjálfara hópsins.
Lestri framsagnahópsins er útvarpað strax að loknum 10 fréttum á hverju kvöldi.