Fótboltamenn og sjóræningjar á bókamessu í Seljaskóla

Skóli og frístund Menning og listir

Fjórir rithöfundar heimsóttu Seljaskóla í morgun og lásu upp úr bókum sínum. Þetta voru þeir Jón Gnarr sem las upp úr bók sinni Sjóræningjanum fyrir elstu nemendur skólans, Illugi Jökulsson sem las fyrir 7. - 8. bekk úr nýjum bókum um fótboltamenn, Gunnar Helgason las og lék fyrir 3. - 4. bekk upp úr bókinni Fótbolti og fantaskapur í Eyjum og Huginn Þór Grétarsson las fyrir yngstu nemendurna og sýndi þeim skemmtilegar myndskreytingar, s.s. úr bókinni Myrkfælna tröllinu. Messan er liður í því að efla bóklestur nemenda og þá sérstaklega drengja.

Eftir upplesturinn áttu rithöfundarnir skemmtilega stund með elstu nemendunum á sal sem spurðu þá spjörunum úr um verk þeirra og vinnulag.



Óhætt er að segja að vel hafi tekist til á bókamessunni og urðu bæði nemendur og rithöfundar margs vísari, s.s. um hvað það getur tekið mislangan tíma að skrifa bók, hvernig stundum eru ýktar persónulýsingar í bókum til að gera þær skemmtilegri og hvaða fyrirbæri skálduð ævisaga er.