Forvarnir skila miklum árangri í grunnskólunum

Skóli og frístund Mannlíf

""

Forvarnardagurinn verður haldinn í áttunda sinn í grunnskólum og framhaldsskólum miðvikudaginn 9. október. Rannsóknir sýna markverðan árangur af forvörnum frá árinu 1998 og standa grunnskólanemar hér á landi sig mjög vel í alþjóðlegum samanburði.

Rannsóknir sýna að með markvissu átaki hefur tekist að minnka til mikilla muna áfengisneyslu, tóbaksreykingar og aðra fíkniefnaneyslu ungmenna hér á landi og er neysla meðal 10. bekkinga enn á niðurleið. 5% 10. bekkinga segjast nú hafa bragðað áfengi síðustu 30 daga en á árinu 1998 svöruðu 42% nemenda í 10. bekk þeirri spurningu játandi.  Árið1998 reyktu um 23% 10. bekkinga daglega en í dag svara 3% nemenda þeirri spurningu játandi. 2% nemenda segjast hafa prófað hass, en á árinu 1998 svöruðu 17% nemenda þeirri spurningu játandi.    



Tillögur og hugmyndir ungmenna að forvörnum eiga sinn þátt í hversu góður árangur hefur náðst í efstu bekkjum grunnskólans, en þær tillögur hafa verið teknar saman og settar í skýrslu sem birt er á vefsíðu dagsins www.forvarnardagur.is. hallo



Meginmarkmið Forvarnardaginss er að minna á hvaða ráð duga best til að koma í veg fyrir að ungmenni verði fíkniefnum að bráð. Þar best hæst þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi, samverustundir með fjölskyldunni og að fresta því sem lengst að neyta áfengis, því hvert ár sem unglingar draga að byrja að neyta áfengis, dregur verulega úr líkum á ofdrykkju og fíkniefnaneyslu síðar meir.



Forvarnardagurinn og árangur af forvörnum var kynntur á blaðamannafundi í Háaleitisskóla/Álftamýri í morgun með nemendum og fulltrúum allra þeirra sem að deginum standa. Dagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands, en aðrir aðstandendur eru Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Olympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Rannsóknir og greining og Félag íslenskra framhaldsskóla. Forvarnardagurinn er skipulagður með fjárstuðningu frá lyfjafyrirtækinu Actavis.



Jón Gnarr borgarstjóri lagði í ávarpi sínu á blaðamannafundinum áherslu á gildi góðra fyrirmynda, þar bæru allir jafna ábyrgð. Þá sagðist hann greina samhengi á milli rusls á götum og áfengisneyslu og reykinga, því að hann tíndi jafnan mest upp rusl eftir reykingamenn á götum borgarinnar og þá helst þeirra sem reyktu Salem.