Foreldrar hæstánægðir með frístundaheimilin

Skóli og frístund

Ný könnun meðal foreldra barna á frístundaheimilum borgarinnar sýnir að mikill meirihluti þeirra er ánægður með þá þjónustu sem þau veita. 9 af hverjum 10 þeirra eru ánægðir með frístundaheimilið og telja að barninu þeirra líði þar vel. Ánægja með þjónustu og viðfangsefni frístundaheimilanna hefur aukist milli ára.

 

Markmið könnunarinnar, sem náði til á fjórða þúsund foreldra barna í 1. – 4. bekk, var að skoða viðhorf þeirra til frístundaheimila, daglegra viðfangsefna frístundaheimilanna, áherslur í faglegu starfi og upplýsingagjöf. Þetta er í annað sinn sem slík könnun er gerð, en eitt af meginmarkmiðum skóla- og frístundasviðs er að nýta kannanir og mat til að styðja við skóla- og frístundastarf.

 

Í ljós kom 94% foreldra telja barninu almennt líða vel á frístundaheimilinu (88% árið 2011) og 89% töldu dvölina þar hafa jákvæð félagsleg áhrif á barnið (83% árið 2011). Rösklega 82% foreldra töldu viðfangsefni barnsins á frístundaheimilinu áhugaverð (79% árið 2011) og 87% töldu vel ganga að samræma dvöl á frístundaheimili við annað skipulagt frístundastarf. Þá mældist mikil ánægja með samskipti við starfsfólk frístundaheimilanna eða 90% samanborið við 82% árið 2011.



Viðhorfskönnun sem þessi er mikilvægt umbótatæki og vinnur hvert frístundaheimili úr niðurstöðunum til að styrkja þá þætti sem koma veikir út. 



Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, segir niðurstöður könnunarinnar mjög hvetjandi fyrir starfsfólk frístundaheimila og að ástæða sé til að óska þeim til hamingju með þær;

„Það er mikil gróska í frístundastarfinu og þróunarverkefni blómstra um alla borg. Sífellt fleiri sækja í framhaldsnám í tómstunda- og félagsmálafræði og okkur verður betur og betur ljóst hvað hugmyndafræði frístundastarfsins er mikilvæg í lærdómsumhverfi barna. Ánægja foreldra með frístundaheimilin segir okkur að við séum á réttri leið, og hvetur okkur til þess að halda áfram að byggja upp bestu frístundaheimili á landinu.“

Viðhorf foreldra barna á frístundaheimilum Reykjavíkur eru könnuð reglulega og hefur ánægja þeirra með þjónustu og viðfangsefni aukist jafnt og þétt milli ára.

Sjá niðurstöður könnunarinnar.