Fögnum friði og fjölmenningu í Viðey í dag

Mannlíf Menning og listir

""

Haldið verður upp á frið og fjölmenningu með skemmtilegri samverustund fyrir fjölskyldur í Viðey sunnudaginn næsta, 8. desember. Fjölbreytt dagskrá er í boð sem hefst klukkan 14.15 og lýkur 17.00. Ekki missa af notalegri stund fyrir alla fjölskylduna úti í Viðey.

Í Viðeyjarstofu mun Elsa Nielsen, annar höfundur Brosbókarinnar, lesa upp úr bókinni sem er nútímalegt ævintýri þar sem allt getur gerst. Myndskreytingarnar iða af lífi og leik og gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. Í kjölfarið verður föndrað og börn frá ýmsum löndum syngja jólalög á mörgum tungumálum. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu verður opið allan daginn og þar verður hægt að kaupa ljúffengar veitingar. Að lokum verður boðið upp á göngu að Friðarsúlu Yoko Ono, fræðst um verkið og fylgst með tendrun Friðarsúlunnar.
 
Hér er einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að njóta friðar og fjölmenningar í skemmtilegu umhverfi Viðeyjar.
Dagskrá:
 
14:15  Siglt til Viðeyjar frá Skarfabakka
14:30  Mæting í Viðeyjarstofu
14:45  Lesið upp úr Brosbókinni 
15:15  Föndur og söngur á ýmsum tungumálum
16:10  Gengið að Friðarsúlu Yoko Ono 
16:30  Fræðsla um verk Yoko Ono og fylgst með tendrun Friðarsúlunnar
17:00  Siglt heim
 
 
Ferjusiglingar frá Skarfabakka eru kl. 13:15, 14:15 og 15:15. Ferjusiglingar frá Viðey eru á klukkutíma fresti frá kl. 13.30 til  16:30 og svo í kjölfar tendrunarinnar kl. 17.00.
Þátttaka er ókeypis  fyrir utan ferjutollinn og skráning fer fram á elding@elding.is. Gjald í ferjuna er kr. 1.100 fyrir fullorðna og kr. 550 fyrir börn (7 – 15 ára) en born yngri en 6 ára sigla frítt. 
 
Dagskráin er samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur, Borgarbókasafns, Viðeyjar og Móðurmáls: Samtaka um tvítyngi.