Menningar- og ferðamálaráð hefur samþykkt tillögur faghóps Bandalags íslenskra listamanna um styrkveitingar til verkefna og menningarstarfssemi í Reykjavík fyrir árið 2014. Fleiri borgarhátíðir fá stuðning og Nordic Affect verður tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2014.
Á fundi menningar- og ferðamálaráðs sme haldinn var í gær sagði Einar Örn Benediktsson formaður ráðsins að menningar- og listalíf höfuðborgarinnar sé öflugt, skapandiog lifandi og að það endurspeglist m.a. í fjölmörgum listviðburðum í hverjum mánuði, og fjölda borgarhátíða sem draga að íbúa og gesti.
,,Fjöldi umsókna í ár ber merki öflugs menningarlífs og styrkveitingarnar eru algjör grundvöllur grasrótarmenningar í borginni. Áherslur menningar- og ferðamálaráðs fyrir 2014 eru aukið aðgengi og þátttaka nýrra hópa í menningunni, börn og menningaruppeldi, samstarf eininga,stofnana, listgreina og listamanna, bókmenntaviðburðir eða verkefni til eflingar Reykjavíkur sem Bókmenntaborgar UNESCO. Borgarhátíðir skipa einnig stóran sess í dagtali borgarbúa og það er ánægjulegt að nú bætast þrjár spennandi hátíðir í þann hóp sem nýtur stuðnings Borgarhátíðasjóðs á næsta ári,“ segir Einar Örn.
Ráðgefandi faghópur um styrki skipaður fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna ( BÍL) hafði 175 umsóknir til umfjöllunar og alls var sótt um rúmar 268 milljónir króna. Faghópurinn lagði til að ráðstafað yrði 49.2 m.kr.- til 81 verkefnis á árinu 2014, gerður verði samstarfssamningur við Menningarfélagið Tjarnarbíó til þriggja ára um rekstur þess sem nemur 10 m.kr. árlega og að gerðir verðir samstarfssamningar til þriggja ára við þrjár tónlistarhátíðir úr Borgarhátíðasjóði fyrir 8 m.kr samtals. Námu því úthlutunartillögur faghópsins samtals kr. 67.2 m.kr. og voru þær samþykktar svohljóðandi:
Gerður verði samstarfssamningur við Menningarfélagið Tjarnarbíó (MTB) um rekstur Tjarnarbíós vegna áranna 2014, 2015 og 2016 að upphæð 10 m.kr. árlega með fyrirvara um samþykki borgarráðs.
Gerðir verði samstarfssamningar vegna áranna 2014, 2015 og 2016 við eftirtaldar hátíðir með framlagi úr Borgarhátíðasjóði með fyrirvara um samþykki borgarráðs: Sónar Reykjavík 4 m.kr., Reykjavík Midsummer Music 2 m.kr, Tectonics tónlistarhátíðin 2 m.kr.
Gerður verði samningur við Heimili kvikmyndanna – Bíó Paradís ses. til eins árs vegna Kvikmyndahátíðar í Reykjavík 2014 að fjárhæð 8 m.kr.
Tónlistarhópurinn Nordic Affect verði útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2014 og hljóti 2 m. kr. styrk., en hópurinn hefur markað sér sérstöðu með flutningi Barokktónlistar og notkun upprunalegra hljóðfæra en teflt þeim arfi saman við tónsköpun lifandi tónskálda og ýmis konar úrvinnslu m.a. með notkun raftækninnar.
Styrkir til verkefna árið 2014:
1.8 m.kr. Kammersveit Reykjavíkur, Stórsveit Reykjavíkur, Caput.
1.1 m.kr. Nýsköpunarsjóður tónlistar – Musica Nova.
1 m.kr. Menningarhúsið Skúrinn co. Maður og kona ehf., Múlinn Jazzklúbbur.
800 þús. kr. Mýrin – barnabókmenntahátíð, ASSITEJ - sviðslistahátíð.
700 þús.kr. Reykjavík Fashion Festival, Krumma Films ehf., Reykjavík Shorts & Docs, Listvinafélag Hallgrímskirkju, List án landamæra, Alþjóðlega tónlistarakademían.
600 þús.kr. IBBY á Íslandi, Spark design space ehf., Helga Rakel Rafnsdóttir vegna heimildamyndar, Lab Loki, Möguleikhúsið, Draumasmiðjan, Vala Ómarsdóttir vegna leikhús- og hljóðverks, Sequences myndlistarhátíð, Íslensk grafík, Rodent ehf. vegna Heimstónlistar í Reykjavík.
500 þús.kr. Listafélag Langholtskirkju, Félag íslenskra kvenna í tónlist, Gunnsteinn Ólafssson vegna ævintýraóperunnar Baldursbrá, Óperarctic félagið, Listasafn ASÍ, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Söngfjelagið, Tónlist á gráu svæði vegna tónlistarhátíðarinnar Jaðarber, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins.
400 þús.kr. King og Kong v. dansleikhusverks, Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan, Þyri Huld Árnadóttir vegna barnaverksins OFUR!, Kvikmyndafélag Íslands vegna Stuttmyndadaga, Leikfélagið Hugleikur, Vigdís Jakobsdóttir vegna leikritsins Útlenski drengurinn, María Ingibjörg Reyndal vegna leikritsins Mannasiðir, Edda Björg Eyjólfsdóttir vegna Galdra-Lofts, Týsgallerí, Tónlistarhátíðin Podium Festival, Reykjavík Folk Festival, Örn Magnússon vegna Kirkjulistahátíðar í Breiðholti, Tónskóli Sigursveins vegna afmælisdagskrár, Krúnk ehf. vegna gallerís Þoku, Elektra Ensemble,15:15 tónleikasyrpan, Midnight Sun Guitar Festival, Kammermúsíkklúbburinn.
300 þús.kr. Anna Dröfn Ágústsdóttir vegna bókarinnar Reykjavík eins og hún hefði getað orðið, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir vegna rafbókar fyrir börn, Erla Steinþórsdóttir vegna vinnusmiðju fyrir börn, Katrín Gunnarsdóttir vegna dansverks, Gjóla ehf. vegna leikverksins Reykur, Aldís Gyða Davíðsdóttir vegna leiksýningarinnar Fiskabúrið, Alexandra Chernyshova vegna óperunnar The Medium, Lúðrasveit verkalýðsins, Elfa Lilja Gísladóttir vegna Upptaktsins 2014, Félag íslenskra tónlistarmanna, Adapter, Lúðrasveitin Svanur, Stelpur rokka!, Lúðrasveit Reykjavíkur, Katrín Gunnarsdóttir vegna dansverksins Til Þín frá okkur, Smekkleysa vegna verkefnisins Orðið tónlist.
250 þús.kr. Folk Dance Festival, Raflost.
200 þús.kr. Steinunn Ketilsdóttir vegna dansverksins Nordic Blonde, Ástbjörg Rut Jónsdóttir vegna dansleikhúsverksins Golden Age, Handverk og hönnun, Fatahönnunarfélag Íslands, Áslaug Thorlacius vegna myndlistar- sýningarinnar Myndir Ingileifar, Bjarki Sveinbjörnsson vegna Söngsagna úr Reykjavík, Pamela De Sensi vegna barnatónleika á Myrkum músíkdögum, Tónlistarhópurinn Kúbus,Vox Feminae.
150 þús.kr. Brynja Pétursdóttir vegna Street dans einvígisins, Hjörtur Jóhann Jónsson vegna leikverksins Illsku.
100 þús.kr. Camerarctica.
Auk þeirra styrkja sem nú voru samþykktir eru tíu borgarhátíðir þegar með samninga vegna framlags árið 2014 fyrir samtals 35.5 m.kr. og sjö samstarfssamningar eru jafnframt í gildi fyrir samtals 25.2 m.kr.
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar skipa: Einar Örn Benediktsson formaður, Margrét Kristín Blöndal, Eva Baldursdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir og Davíð Stefánsson.
Ráðgefandi faghóp frá Bandalagi íslenskra listamanna um styrkina skipuðu: Gunnar Hrafnsson formaður, Ólöf Nordal, Randver Þorláksson, Magnea J. Matthíasdóttir og Valdís Óskarsdóttir.