Fjölmenni á Stóra leikskóladeginum

Skóli og frístund

""

Stóri leikskóladagurinn er nú haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mikill fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Tjarnarsalinn þar sem leikskólar borgarinnar eru með kynningarbása um starfsemi og fræðslustarfið sem fram fer í skólunum.  Fyrirlestrar verða fluttir í Tjarnarbíói. Allir eru boðnir velkomnir að koma og kynna sér skapandi og fjölbreytt starf leikskólanna.

Græn hugsun, leikur, listir, samskipti og vísindi er meðal þess sem leikskólarnir kynna í Ráðhúsinu. Leikskólinn Bakkahlíð verður með kynningu um áherslur skólans á gleði, vináttu og virðingu. Leikskólinn kynnir þriggja ára þróunarstarf sem hefur að markmiði að efla samskiptafærni í leikskólanum. Hluti verkefnisins er að aðlaga stefnuna Uppeldi til ábyrgðar að ungum aldri barnanna á Bakkahlíð.

Á leikskólanum Furuskógi hafa börnin fræðst um fuglana í nánasta umhverfi skólans og kynna afraksturinn af þeim rannsóknum.

Engjaborg, Brekkuborg og Austurborg hafa unnið saman að verkefni sem þau kalla hulduheima en skólarnir vinna allir í anda ítalans Reggio Emilia. Sameiginlegt þema leikskólanna þennan vetur var eldurinn og er afrakstur vetrarins verður sýndur í máli og myndum. Frábær samvinna en mismunandi nálgun.

Reykjanesbæ er gestur Stóra leikskóladagsins í ár. Á leikskólanum Holti í Reykjanesbæ hafa börnin verið að rýna í bæjarfélagið sitt og leitast við að greina lýðræði og læsi. Markmiðið með félagsfærniverkefnum er að hjálpa börnum að skilja betur tilfinningar sínar, hugsanir, langanir og líðan. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín á eigin forsendum.

Þetta er bara brot af því sem Stóri leikskóladagurinn hefur upp á að bjóða. Allir sem áhuga hafa á leikskólastarfi, barnauppeldi og menningu barna ættu að kíkja í Ráðhús Reykjavíkur á föstudaginn næstkomandi.