Fjárhagur Reykjavíkurborgar styrkist jafnt og þétt

Fjármál

""
Í dag var lagt fram í borgarstjórn frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 og fimm ára áætlun 2014 - 2018. Samkvæmt frumvarpinu vænkar hagur Reykjavíkurborgar jafnt og þétt. Unnið er hörðum höndum að því að greiða niður skuldir samstæðunnar, A- og B-hluta, en þar eru skuldir Orkuveitu Reykjavíkur fyrirferðarmestar.
Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar verði jákvæð um 8,1 milljarð króna en að A-hlutinn,  sem heldur utan um hinn eiginlega rekstur borgarinnar, skili 495 mkr. afgangi árið 2014. Á þessu ári er áætlað að rekstrarniðurstaða A-hluta verði jákvæð um 720 mkr.
 
„Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar hefur ástundað ábyrga fjármálastjórn, aðhald og stefnufestu í rekstri borgarinnar,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri. „Reykjavíkurborg mun leggja um 8.4 milljarða í fjárfestingar á árinu og fyrirtæki, sem borgin er meirihlutaeigandi að, rúmlega annað eins. Þetta mun auka kraftinn í atvinnulífi borgarinnar. Það eru mörg vegleg og frábær verkefni framundan í uppbyggingu og viðhaldi skólamannvirkja. Haldið verður áfram við endurnýjun gatna í miðborginni og skólalóðir endurbættar um alla borg. Við hefjumst handa við ný skóla- og íþróttamannvirki í Úlfarsárdal og hefjum byggingu nýrrar útisundlaugar við Sundhöllina í Reykjavík ,“ segir borgarstjóri.
 
Útkomuspá ársins sýnir að grunnrekstur samstæðunnar, einkum Orkuveitu Reykjavíkur og A-hluta borgarsjóðs er sterkur. Árið 2014 er áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði 18.5 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að samstæðan greiði niður skuldir um 23,4 milljarða á næsta ári en á þessu ári nema greiðslur langtímaskulda rúmum 29 milljörðum. 
 
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar styrkist um rúm 2% á milli ára, fer úr 31.3% í 33.5%  og skuldsetningarhlutfall lækkar úr 179% í 161% á milli áranna 2013-2014. 
 
Staða A-hluta er áfram sterk en eiginfjárhlutfall hans er 55.9% og handbært fé í árslok er áætlað 8.2 milljarðar.


Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 eru stærstu viðbæturnar inn á skóla- og frístundasvið og velferðarsvið sem eru stærstu fagsvið borgarinnar. „Reykjavík ber ríka félagslega ábyrgð og um 25% af heildarútgjöldum fara til velferðarmála sem er talsvert hærra hlutfall en hjá öðrum sveitarfélögum.  Áfram verður aðhald í rekstri skóla og frístundamiðstöðva en rekstrarumhverfi skólanna verður ívið sveigjanlegra en áður,“ segir borgarstjóri. 


Gjaldskrár Reykjavíkurborgar hækka á bilinu 3,4%-5,7%. Þrátt fyrir hækkanir verða  gjaldskrár fyrir skóla- og frístundaþjónustu áfram með þeim allra lægstu á landinu auk ríkulegra afslátta fyrir barnmargar fjölskyldur. Gjald sem foreldrar greiða fyrir mat í leikskólum og grunnskólum hækkar meira til að auka gæði skólamáltíða, sem dæmi hækkar hver skólamáltíð í grunnskóla úr 330 krónum í 380 krónur. Áfram verður þó sú regla að fjölskyldur greiða aldrei meira en fyrir tvö börn í skólamat grunnskóla.  

 

Miklar niðurgreiðslur skulda áætlaðar næstu fimm árin

 
Í fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir samstæðuna er áfram gert ráð fyrir mikill niðurgreiðslu skulda en haldið verður áfram að greiða niður langtímaskuldir Orkuveitunnar í samræmi við Planið.  Vegna þeirrar niðurgreiðslu munu fjármagnsgjöld snarlækka á tímabilinu og er þar um mikinn viðsnúning að ræða. Gert er ráð fyrir að afborganir langtímalána nemi um 108 milljörðum á tímabilinu.
 
Samkvæmt fimm ára áætlun mun rekstur A-hluta styrkjast jafnt og þétt. Áætlað er að afkomin batni um 4,2 milljarða á tímabilinu.
 
„Það er mikið ánægjuefni að fjárhagsleg staða borgarinnar sé að styrkjast jafnt og þétt og að borgarsjóður sé í jafn góðri stöðu og raun ber vitni,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.