Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun viljayfirlýsingu um stofnun tilraunaverkstæðis, eða svokallað Fab-lab, í Breiðholti í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Markmið Fab Lab er að gefa ungum sem öldnum, einstaklingum sem fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Þá er verkefninu einnig ætlað að auka tæknilæsi almennings og almenna tæknivitund. Um leið skapast vettvangur fyrir nýsköpun og eflingu samkeppnishæfni iðnfyrirtækja, menntastofnana og nemenda.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur Fab lab smiðjur í samstarfi við alþjóðlegt net Fab Lab smiðja um allan heim sem er leitt áfram af MIT háskólanum í Boston. Nú þegar eru starfæktar tvær smiðjur í Vestmannaeyjum og á Sauðárkróki og undirbúningur smiðju á Ísafirði er langt komin. Á öllum stöðum fer starfsemin fram í samstarfi við viðkomandi sveitarfélög og framhaldsskóla bæjanna. Aðsóknin í smiðjurnar hefur verið mjög mikil og eru nemendur , frumkvöðlar, hönnuðir, og listamenn víðs vegar að úr heiminum tíðir gestir. Árið 2011 voru 2400 heimsóknir í smiðjuna í Vestmannaeyjum og á Sauðárkróki voru gestir um 3000.
Reykjavikurborg mun standa straum af stofnkostnaði vegna verkefnisins. NMÍ og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti bera faglega ábyrgð á starfseminni og standa straum af launa og rekstrarkostnaði samkvæmt nánara samkomulagi. Endanlegt samkomulag ásamt kostnaðaráætlun verður lagt fyrir borgarráð til samþykktar. Stefnt er að því að verkstæðið taki til starfa sem fyrst og eigi síðar en fyrir upphaf haustannar FB.