Jólaborgin Reykjavík kynnir nýja jólavætti í Listasafni Reykjavíkur-Hafnarhúsi á morgun kl. 8.30 fimmtudaginn 5. desember. Frá og með morgundeginum munu þær birtast ein af annarri á húsveggjum víðsvegar um borgina þar sem þeim verður hampað. Jólaborgin Reykjavík hefur sjaldan verið eins spennandi, skrautleg, skemmtileg og full af viðburðum og í ár.
Jólavættir Reykjavíkur verða með þeirri nýjustu orðnar ellefu talsins. Henni verður vel tekið af fjölskyldu sinni þeim Grýlu, Leppalúða, Jólakettinum, Rauðhöfða og jólasveinunum sem prýtt hafa veggi borgarinnar undanfarin ár.
Í Listasafni Reykjavíkur verður nyjasta vættin kynnt formlega til sögunnar með pompi og prakt. Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri mun kynna nýju jólavættina til sögunnar og verður hún heiðruð á viðeigandi hátt. Þá mun Jón Gnarr borgarstjóri segja frá helstu viðburðum sem Jólaborgin Reykjavík hefur upp á að bjóða nú á aðventunni.
Jólavættirnar, sem Gunnar Karlsson myndlistarmaður hefur teiknað, byggja á hugmynd Hafsteins Júlíussonar um að tengja íslenska sagnahefð við Jólaborgina Reykjavík. Þær gegna lykilhlutverki í að kynna sérstöðu Reykjavíkur sem jólaborgar fyrir innlendum og erlendum gestum. Meginmarkmiðið er að skapa áhrifaríka og skemmtilega jólaupplifun í borginni á einfaldan hátt í góðu samstarfi við fjölda samstarfsaðila víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.
Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur.