Breyting á deiliskipulagi Landsímareits

Skipulagsmál

Kynningarfundur um breytingar á deiliskipulag á Landsímareit – Kvos  var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Þar var kynnt nýtt deiliskipulag fyrir Landsímareitinn svokallaða. Reiturinn afmarkast af Aðalstræti, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti.

Helstu breytingar á nýju deiliskipulagi felast í því að það tekur ekki til Ingólfstorgs.  Reykjavíkurborg hefur ekki í hyggju að reisa þar menningarhús líkt og var að finna í vinningstillögu ASK arkitekta sem kynnt var í vor. Þá er dregið talsvert úr byggingarmagni frá fyrra deiliskipulagi reitsins frá 1987.

Í breyttu deiliskipulagi, sem ASK arkitektar hafa unnið tillögu að, eru nýbyggingar við Vallarstræti lækkaðar, samkomusalur sem kemur í stað salar sem kenndur hefur verið við NASA verður fjölnota og í götuhæð. Við Vallarstræti verða byggð ný hús sem tengjast eldri húsunum á reitnum og verða nýbyggingarnar með risi en þó í nútímalegum stíl. Nýbygging við Kirkjustræti verður með risi og kallast á við eldri hús á þessu svæði. Hægt verður að ganga á milli Ingólfstorgs og Víkurgarðs í gegnum port.

Gamla Landsímahúsið hækkar lítillega en á það verður sett svokallað mansard þak með kvistum, líkt og á Hótel Borg hinum megin við Austurvöll. Þá er yngra Landsímahúsið við Thorvaldsensstræti 6 hækkað úr fimm hæðum í sex að hluta til.

Gömlu húsin á reitnum fá öll að halda sér, en þau standa við Aðalstræti 7, Vallarstræti 4 og Thorvaldsensstræti 2.  Fyrra deiliskipulag frá 1987 heimilaði niðurrif allra húsanna.

Með skipulaginu eru nokkur markmið höfð að leiðarljósi.

• Að stuðla að góðu samspili almenningsrýma í Kvosinni, bygginga og nærumhverfis.

• Lögð áhersla á umhverfisleg og samfélagsleg gæði hins manngerða umhverfis.

• Borin virðing fyrir sögulegri arfleifð, staðaranda og menningarlegu hlutverki.

• Hugað að aðgengi fyrir alla og að flæði gangandi, hjólandi og akandi umferðar sé gott.

• Að nýbyggingar og frágangur þeirra verði í hæsta byggingarlistalegum gæðaflokki, sem eflir virkni og notagildi svæðisins.

Í framhaldi af kynningarfundinum hefst hagsmunaaðilakynning sem stendur frá og með 20. febrúar til  6. mars 2013. Athugasemdum eða ábendingum er veitt móttaka á kynningartímanum. Þeim verður ekki svarað skriflega heldur verða þær innlegg í áframhaldandi vinnu. Þær skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is.

Tillaga að breyttu deiliskipulagi mun verða til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur og í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni  12 - 14, auk þess sem hún verður aðgengileg á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Greinargerð um breytt deiliskipulag á Landsímareit.