Brautarholt 7, Rauðarárholt - hagsmunaaðilakynning

Skipulagsmál

Kynnt verður tillaga að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir byggingu 95-100 íbúðaeininga fyrir nemendur á lóðinni. Gert er ráð fyrir íbúðaeiningum fyrir einstaklinga. Deiliskipulagstillagan afmarkast af Brautarholti, Ásholti, Stakkholti og Mjölnisholti.



Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 8. janúar kl. 16-17  í húsnæði Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Fundarherbergi; Kerhólar á 7.hæð vesturenda. Gestir nálgast  aðgangspassa í þjónustuveri á jarðhæð.



Veittur verður frestur til ábendinga og athugasemda til 23. janúar 2013. Sendist á netfangið skipulag@reykjavik.is. Athugasemdum og ábendingum verður ekki svarað skriflega heldur eru þær innlegg inn í áframhaldandi vinnu. Fundurinn er öllum opinn og er vonast til að sjá sem flesta.



Skoða teikningar:

- Deiliskipulagstillaga (PDF)  

- Skýringaruppdráttur (PDF)  



*skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.